Sigurjón K. Sigurjónsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns Notenda- og reikningsþjónustu á þjónustusviði Orkuveitu Reykjavíkur.

Sigurjón er viðskiptafræðingur og rafvirkjameistari að mennt og starfaði sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkubúi Vestfjarða, áður en hann slóst í hóp OR-starfsfólks fyrir um sjö mánuðum.

Undir Notenda- og reikningaþjónustu fellur allur mælarekstur, heimlagnaþjónusta, þjónusta við notendur á notkunarstað, álestrar og reikningagerð. Þjónustusvið OR sér meðal annars um útgáfu reikninga fyrir dótturfyrirtæki OR, þ.e. Veitur, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur.