Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 2.100 tonn af íslenskri sumargotssíld. Þá er Börkur NK á leið til Neskaupstaðar með 1.450 tonn.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Þar með hafa Síldarvinnsluskipin lokið veiðum á íslenskri sumargotssíld á þessari vertíð.

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, segir í viðtali við heimasíðuna að þessi síðasta veiðiferð hafi verið heldur löng vegna veðurs.

„Veiðiferðin tók eina sex daga en við vorum bara um þrjá sólarhringa að veiðum. Það gerði tvisvar bölvaða brælu og þá var legið undir Reykjanesi og í höfn í Reykjavík. Veiðarnar fóru fram utarlega í Faxadýpinu og undir lokin urðum við varir við töluverða síld,“ segir Tómas.

Næst á dagskrá hjá Beiti og Berki er kolmunnaveiði. Bjarni Ólafsson hefur þegar hafið kolmunnaveiðar og einnig skipið Polar Amaroq.