Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,55% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.772,73 stigum. Það sem af er ári hefur vísitalan hækkað um 5,73%. Gengi bréfa Símans hækkaði um 2,33% og Marels um 1,59%, en gengi bréfa Reita lækkaði um 2,02% og Regins um 1,95%.

Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 2.864,6 milljónum króna og var veltan mest í viðskiptum með bréf Icelandair Group, eða 928,3 milljónir króna. Hækkaði gengi bréfa félagsins um 0,74% í dag.