Hópmálsókn 4,4 milljón eigenda iPhone síma gæti kostað Alphabet, móðurfélag Google, yfir 600 milljarða króna að því er Bloomberg greinir frá . Málsóknin var höfðuð fyrir breskum dómstólum af hópnum Google You Owe Us , sem talar máli 4,4 milljón iPhone notenda.

Málsóknin byggir á því að Google hafi ólöglega safnað persónuupplýsingum um notendur iPhone síma með því að komast fram hjá persónverndarstillingum símanna.

Hópurinn heldur því fram að hver notandi eigi rétt á 750 pundum í bætur, sem samsvarar um 106 þúsund krónum. Google hafnar málatilbúnaðnum og telur málið ekki eiga heima fyrir breskum dómstólum.