Aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar fyrir árin 2017 til 2022 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi síðdegis í gær en samkvæmt henni mun lögbundið skuldaviðmið nást á þeim tíma, en slíkt er nauðsynlegt samkvæmt lögum. Í lögunum var lögð sú lína að hlutfall heildarskulda af tekjum sveitarfélaga mætti ekki fara yfir 150 prósent. Ákveðinn aðlögunartími var gefinn og höfðu sveitarfélög allt að 10 ár til að laga reksturinn að þessu viðmiði.

Unnið hefur verið að fjárhagslegri endurskipulagningu Reykjanesbæjar frá árinu 2014, en Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hafði krafið bæinn um aðlögunaráætlun til að uppfylla skilyrði laga um skuldaviðmið.

„Aðlögunaráætlunin byggir á þeirri framtíðarsýn að í Reykjanesbæ ríki áfram mikill kraftur og uppbygging með tilheyrandi fólksfjölgun, fyrsta flokks þjónustu og auknum lífsgæðum.  Til að ná markmiðinu þurftum við að lækka skuldir og auka tekjur með aðgerðaráætlun okkar, sem fékk nafnið Sóknin og kynnt var í október 2014. Við settum okkur fjögur markmið. Að reka bæinn okkar með afgangi til lengri tíma en ekki halla eins og verið hefur um árabil. Að hafa hemil á fjárfestingum. Að gera B-hluta stofnanir sjálfbærar og stöðva streymi fjármagns úr grunnþjónustu bæjarins. Og loks að endurskipuleggja efnahaginn með lækkun skulda. Þetta hefur tekist og því ber að fagna,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar við tilefnið.

Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, segir: „Reykjanesbær var langt yfir 150% skuldaviðmiði þegar við tókum við árið 2014 og bærinn var í einni erfiðustu stöðu sveitarfélaga á landinu.  Skuldirnar voru að mestu leyti til komnar vegna ýmissa verkefna, fjárfestinga og skuldbindinga, ekki síst vegna leiguskuldbindinga Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf. Erfiðasta verkefnið var í raun að semja við kröfuhafa en nú liggur fyrir óundirritað samkomulag sem við vonumst til að gengið verði frá innan skamms. Aðlögunaráætlun okkar gerir ráð fyrir að tekjur Reykjanesbæjar haldi áfram að vaxa með fjölgun íbúa, hærra atvinnustigi og auknum tekjum Reykjaneshafnar í kjölfar aukinnar skipaumferðar vegna uppbyggingar hafnsækninnar starfsemi í Helguvík. Við reiknum með að lækka útsvar bæjarbúa til jafns við það sem gengur og gerist á landinu, endurfjármögnum skuldir Reykjaneshafnar og gerum ráð fyrir að Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf. verði skipt í tvennt, en á móti kemur talsverð útgjaldaaukning vegna nýrra grunn- og leikskóla svo eitthvað sé nefnt.