Fimm einstaklingar gefa kost á sér til stjórnar Fjarskipta hf. móðurfélags Vodafone en aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars. Því liggur fyrir að sjálfkjörið verður í stjórnina.

Öll þau sem gefa kost á sér eiga það sameiginlegt að vera núverandi stjórnarmenn og munu því halda áfram störfum sínum fyrir félagið að fundi loknum. Þau eru:

  • Anna Guðný Aradóttir
  • Heiðar Guðjónsson
  • Hildur Dungal
  • Hjörleifur Pálsson
  • Yngvi Halldórsson