Sjálfstæðisflokkurinn mælist með stuðning 20,8% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 3.-9. október.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um hálft prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 12. september. Samfylkingin mældist með 16,7% fylgi sem er rúmum þremur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Píratar mældust með 12,7% fylgi sem er hálfu prósentustigi minna en í síðustu mælingu. Þá bætti Miðflokkurinn rúmu prósentustigi við fylgi sitt frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina fer vaxandi en 47,5% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,1% í síðustu mælingu.

  • Fylgi Miðflokksins grænna mældist nú 11,9% og mældist 10,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,9% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,6% og mældist 7,9% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,1% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi annarra flokka mældist 3,2% samanlagt.