ORF Líftækni hf. hefur ráðið til sín sjö nýja starfsmenn vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins erlendis og hér heima. Það er mikill fengur fyrir ORF Líftækni að fá þessa starfsmenn til liðs við sig.

Gunnar Helgi Steindórsson fer í nýtt starf sem verkefnastjóri í viðskiptaþróun og greiningum á Viðskiptaþróunarsviði. Gunnar er menntaður viðskiptafræðingur og flytur heim frá Bandaríkjunum þar sem hann hefur starfað sem sölu- og markaðsstjóri fyrir bandaríska starfsemi Kern AG. Áður en Gunnar tók við starfi sölu- og markaðsstjóra sinnti hann hlutverki verkefnastjóra í viðskipta- og vöruþróun hjá sama fyrirtæki.

Helgi Már Magnússon mun taka við starfi alþjóðlegs viðskiptastjóra á Sölusviði. Helgi flytur heim frá Bandaríkjunum þar sem hann hefur starfað undanfarin ár sem verkefnastjóri í sölu- og markaðsdeild Kerecis. Áður en hann fluttist til Bandaríkjanna vann hann sem viðskiptastjóri hjá Greitt ehf. og þar á undan sem framkvæmdastjóri auglýsingadeildar hjá Sagafilm. Helgi er menntaður í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum.

Birna Gísladóttir, viðskiptafræðingur, tekur við starfi sölufulltrúa á Sölusviði. Undanfarin ár hefur Birna starfað sem flugfreyja hjá Icelandair, en þess fyrir utan starfaði hún um árabil einnig sem sölu- og markaðsfulltrúi hjá IceCare.

Xue Meng, lögfræðingur, fer í nýtt starf sem sölu- og lagafulltrúi á Sölusviði. Xue Meng hefur síðustu ár verið í námi auk þess að sinna verkefnum í Shanghai í Kína fyrir fyrirtæki á borð við Exxon Mobil Corporation, Asia Institute of Art & Finance og Fanstang Entertainment Co.Ltd.

Brynja Sif Bjarnadóttir tekur við nýju starfi sem aðstoðarmaður á rannsóknastofu á Rannsókna- og nýsköpunarsviði. Brynja Sif er lyfjatæknir og starfaði um árabil á rannsóknastofu Actavis, en þar á undan hjá Apóteki Landspítalans.

Svava K. Guðjónsdóttir hefur hafið störf við framleiðslu BIOEFFECT húðvara á Framleiðslusviði.
Undanfarin ár hefur Svava rekið sína eigin heildsölu. Þar á undan starfaði hún hjá heildsölunni Stúdíó Vík við sölu, innkaup, lagerhald og almenn skrifstofustörf.

Steinn Hlíðar Jónsson hefur hafið störf sem tæknimaður í tækja- og eignaumsýslu á Framleiðslusviði.
Steinn Hlíðar er menntaður vélvirki, með burtfararpróf í rennismíði og hefur meirapróf. Hann var um árabil umsjónarmaður Músik og Mótor hjá Hafnarfjarðarbæ, en síðustu tvö ár var hann umsjónarmaður verkfæra hjá WOW Air.

Um Orf Líftækni

ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í plöntulíftækni. Fyrirtækið framleiðir sérvirk prótein sem notuð eru sem innihaldsefni í BIOEFFECT húðvörur fyrirtækisins, seld til læknisfræðilegra rannsókna og nýtt í önnur þróunarverkefni fyrirtækisins. ORF hefur þróað tækni til að framleiða slík prótein í byggi, en aðferðin er afrakstur tveggja áratuga vísinda- og þróunarstarfs. BIOEFFECT vörurnar hafa fengið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir virkni og gæði og eru seldar í um 28 löndum. ORF líftækni hefur vaxið hratt á undanförnum árum og hjá fyrirtækinu starfa nú tæplega 70 manns.