Nýr kjarasamningur SSÍ og SFS hefur verið undirritaður. Kjarasamningurinn er framlenging af núgildandi samningi með þeim breytingum að kauptrygging hækkar frá 1. júní um 23% og verður 288.000. Í samningslok 31. desember 2018 verður kauptryggingin kr. 310.000. Aðrir kaupliðir hækka um 17,1 % á samningstímanum.

Nýtt olíuverðsviðmið tekur gildi þannig að nú er orðið styttra í að skiptahlutfallið hækki.

Mælieiningar skipa verða áfram brl. til að ákveða skiptaprósentur í samningnum.

Nýr kafli um frystitogara vegna fjölgunar í áhöfnum. Frá þessu er skýrt á Facebook síðu SSÍ.

Fæðispeningar og mönnun

Þar segir ennfremur: "Vilji er hjá fjármálaráðherra að hluti fæðispeninga sjómanna verði skattfrjálsir. Tekjuáhrifin eru um hálfur milljaður króna. Frumvarp þess efnis er komið fram. Nánari útfærsla er í vinnslu.

Og að síðustu en ekki síst er bókun sem fylgir samningnum um athugun á mönnun fiskiskipa og hvíldartíma Íslenskra sjómanna sem Jón Bernódusson hjá Samgöngustofu mun hafa forgöngu um. Sú könnun mun hjálpa okkur í slagnum við SFS um fækkun í áhöfnum.

Einnig er bókun um endurritun samningsins alls fyrir lok samningstímans. Ríkissáttasemjari mun stýra þeirri vinnu ef samningurinn verður samþykktur. Þar er búið að skilgreina hvað á að ræða um og tímasetja lok vinnunnar við hvern lið."

Sjómenn greiða atkvæði

Loks segir á Facebook síðu SSÍ: "Sjómenn við leggjum þetta í ykkar dóm. Þetta varð lendingin að þessu sinni. Lengra var ekki komist án átaka. Að mínu mati eru bókanirnar í samningnum mikils virði einfaldlega vegna þess að útgerðarmenn hafa ekki áður ljáð máls á að tala við okkur um stóru málin, fiskverð og nýsmíðaálagið svo eitthvað sé nefnt. Einnig mun könnun á mönnun og hvíldartíma verða til þess að hægt sé að ræða þessi mál af einhverju viti.

Nú verður samningurinn kynntur næstu vikur úti í félögunum. Atkvæðagreiðsla getur hafist í næstu eða þar næstu viku og henni mun ljúka 8. ágúst."