Gengi hlutabréfa Sjóvár hefur hækkað um ein 4,09% í 111 milljóna króna viðskiptum í dag, en ástæðan mun vera sú að í nýju verðmati greiningardeildar Capacent er viðmiðunargengi bréfanna sagt vera um 16,3 krónur á hlut. Gengi bréfanna stendur nú í 12,73 krónum á hlut.

Í verðmatinu er viðmiðunargengi VÍS sagt vera 8,10 krónur, en það er nú 8,59 krónur og hefur gengi bréfa félagsins lækkað um 1,26%.

Viðmiðunargengi TM er sagt vera 28,3 krónur á hlut, en það er nú 25,05 krónur og hefur gengið hækkað um 10,1% í dag.