Stjórn Sjóvár hefur lagt fram breytingartillögu fyrir komandi aðalfund félagsins þar sem hún breytir arðgreiðslutillögu sinni.

Fyrri tillaga gerði ráð fyrir 3,1 milljarði króna í arðgreiðslur. Ný tillaga stjórnarinnar gerir ráð fyrir verulega lækkaðri arðgreiðslu, eða sem nemur 657 milljónum króna, eða einum fimmta af því sem áður var lagt til. Greinargerð stjórnar Sjóvá með nýrri tillögu má sjá hér í heild sinni.

„Greinargerð stjórnar: Í ljósi viðbragða við fyrirliggjandi tillögu stjórnar um arðgreiðslu og yfirstandandi orðsporsáhættu hefur stjórnin ákveðið að endurskoða þá tillögu sína.

Fyrri tillaga stjórnar var byggð á yfirlýstri arðgreiðslustefnu félagsins og í samræmi við fjárhagslegan styrk þess. Miðaðist hún við að fjárhagsstaðan yrði áfram jafn sterk eftir greiðslu arðs og hún var í ársbyrjun 2015.

Forsenda fyrri tillögu um arðgreiðslu byggir á rekstrarniðurstöðu síðasta árs en ekki á breyttum reikningsskilum eða breytingu á tjónaskuld eins og misskilningur hefur verið um í umræðinni.

Rangfærslur um áhrif arðgreiðslu á fjárhagslegan styrk ógna orðspori Sjóvár. Það er skylda stjórnar að gæta að orðspori félagsins og í því ljósi er þessi tillaga sett fram.

Stjórn Sjóvár harmar þá tortryggni sem beinst hefur að félaginu undanfarna daga. Með þessari breytingartillögu vill stjórn bregðast við henni og mun samhliða beita sér fyrir bættri upplýsingagjöf í því skyni að stuðla að aukinni sátt.“