Fyrirtækið Skaginn 3X  hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun. Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Nýsköpunarþingið var haldið á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni Draumaland nýsköpunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Skaginn hefur undanfarin ár verið leiðandi fyrirtæki í nýsköpun í matvælaiðnaðinum og þá sérstaklega í sjávariðnaði. Fyrirtækið byggir á sterkum þekkingargrunni og virku samstarfi við önnur fyrirtæki og rannsóknastofnanir. Undanfarin ár hefur fyrirtækið náð góðri fótfestu á markaði sem hefur skapast vegna nýrra lausna sem fyrirtækið hefur sett á markað. Lausnir Skagans byggja á mikilli sjálfvirkni með áherslu á bætt gæði og nýtingu afurðar auk þess sem hagkvæmar og umhverfisvænar kæli-, pökkunar- og flutningslausnir eru hafðar að leiðarljósi. Hjá fyrirtækinu starfa um 90 manns við hönnun, þróun og framleiðslu,“ segir í tilkynningunni.

Það er mat dómnefndar að Skaginn 3X sé fyrirtæki sem hefur sýnt árangur á markaði með framúrskarandi nýsköpun að leiðarljósi og er líklegt til að halda áfram á þeirri braut í framtíðinni.