Aðildarfélög Samtaka fjármálafyrirtækja munu greiða um 40 milljarða til hins opinbera á þessu ári. Þetta kom fram í máli Steinþórs Pálssonar, stjórnarformanns SFF, á SFF-deginum í dag. Er þetta um 30% hækkun frá síðasta ári og tvöfalt hærri upphæð en aðildarfélögin greiddu árið 2007, en þá var bankakerfið átta sinnum stærra en það er í dag. Af þessari upphæð greiða aðildarfélögin ríflega 16 milljarða króna í ótekjutengd gjöld eða tólf milljörðum króna meira en þau gerðu árið 2007.

Beinir skattar (tekjuskattur, tryggingagjald, aðrir skattar á vinnuafl og ýmsir sérskattar) á alla lögaðila í landinu eru áætlaðir um 167 milljarðar króna á árinu 2014. Af þeirri fjárhæð greiða fjármálafyrirtæki um 40 milljarða þ.e. tæpan fjórðung.

Steinþór sagði í ræðu sinni að hér væri um mjög þunga skattbyrði að ræða og að hún væri mun meiri en þekktist annar staðar í Evrópu. Eitt væri að skattleggja sannanlegan hagnað af starfsemi, en öðru máli gegndi um ótekjutengd gjöld og háa skatta af skuldum eins og fjármálafyrirtækjum er gert að greiða. Steinþór sagði að slík skattlagning myndi á endanum lenda á viðskiptavinum fjármálafyrirtækjanna.