Í gær barst Samherja afrit af tilkynningu skattrannsóknarstjóra til embættis sérstaks saksóknara þar sem fram kemur að eftir skoðun á Samherjamálinu svokallaða hafi skattrannsóknarstjóri ekki séð ástæðu til nokkurra aðgerða af sinni hálfu. Kemur þetta fram í bréfi Þorsteins Más Baldvinssonar til starfsmanna Samherja, sem birt er á vefsíðu fyrirtækisins.

Sérstakur saksóknari hafði áður fellt niður málið, sem varðaði meint brot Samherja á gjaldeyrislögum. Samhliða niðurfellingunni sendi sérstakur saksóknari afmarkaða þætti málsins til skoðunar hjá skattrannsóknarstjóra, sem eins og áður segir sér ekki ástæður til aðgerða.

Í bréfinu er einnig bent á að umboðsmaður Alþingis hafi gagnrýnt ýmsa þætti varðandi stjórnsýslu Seðlabankans og að bankaráð hafi samþykkt að gerð verði óháð úttekt á stjórnsýslu bankans við framkvæmd gjaldeyriseftirlits og gjaldeyrisrannsókna.

„Við erum því mjög ánægðir með niðurstöðuna enda er hún í samræmi við það sem við höfum alltaf sagt, að starfsfólk Samherja hafi unnið vel og eftir bestu samvisku þrátt fyrir erfiðar kringumstæður hin síðari ár. Aldrei hefur verið farið jafn nákvæmlega og ítarlega í gegnum starfsemi nokkurs fyrirtækis eins og í þessu máli. Niðurstaðan er að starfsfólk Samherja og dótturfélaga okkar hafa unnið störf sín af trúmennsku og heiðarleika. Er því búið að hreinsa starfsfólk Samherja af ásökunum sem fram komu í kærum Seðlabankans til embættis sérstaks saksóknara.

Ítreka skal að staðfest hefur verið að ávirðingar Seðlabankans hafa verið efnislega rangar og hafa ekkert með gildi laga og reglna að gera. Grundvöllur málsins hefur frá upphafi verið rangur. Aðför Seðlabankans að okkur, félaginu og starfsfólki, verður því ekki kölluð annað en ljót og er bankanum til minnkunar,“ segir Þorsteinn Már í bréfinu.