Leiðréttar tölur Hagstofunnar fyrir vísitölu neysluverðs í september breyta spá Íslandsbanka um aðgerðir peningastefnunefndar 5. október næstkomandi. Greining Íslandsbanka spáir því nú að vextirnir haldist óbreyttir. Þetta kemur fram í frétt á vef Greiningu Íslandsbanka .

Þar segir að „vísitalan hækkaði um tæp 0,5% á milli mánaða og var það langt umfram spá okkar og aðrar opinberar spár, en við reiknuðum með óbreyttri vísitölu. Ein helsta ástæða spáskekkjunnar er leiðrétting Hagstofunnar á mistökum hennar fyrr á árinu, en mistökin felast í því að hækkunartaktur reiknaðrar húsaleigu, og þar með verðbólgan, hefur verið umtalsvert vanmetin að hálfu stofnunarinnar undanfarna mánuði.“

Fyrir birtingu Hagstofunnar á VNV fyrir september reiknaði Greining Íslandsbanka með því að peningastefnunefndin myndi lækka stýrivexti bankans um 0,25% á næsta vaxtaákvörðunarfundi. „Meðal þess sem við töldum upp sem líklegar forsendur nefndarinnar fyrir lækkun var að krónan hefur styrkst um ríflega 3% frá síðustu vaxtaákvörðun og verðbólguhorfur eru af þeim sökum nokkuð betri en í síðustu verðbólguspá bankans sem birt var samhliða síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í lok ágúst sl. Þá höfðu verðbólguvæntingar lækkað enn frekar líkt og sést m.a. á þróun verðbólguálags ríkisskuldabréfa“ segir í fréttinni.

Vegna mistaka Hagstofunnar er verðbólgan meira en Greining Íslandsbanka hafði áætlað og því eru verðbólguhorfur verri. Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hækkað nokkuð vegna fréttum Hagstofunnar. „Þar af leiðandi eru raunstýrivextir Seðlabankans, hvort sem er mælt út frá núverandi verðbólgu eða verðbólguálaginu, lægri og aðhaldsstig peningastjórnunnar minna. Af þeim sökum eru ekki sömu forsendur fyrir lækkun stýrivaxta og áður. Reiknum við með því að þetta geri útslagið með það að peningastefnunefndin haldi stýrivöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni,“ segir að lokum í fréttinni.