29 starfsmönnum Skeljungs hefur verið tilkynnt um starfslok þeirra hjá fyrirtækinu. Fólkið hefur sinnt ólíkum störfum innan fyrirtækisins, ýmist á skrifstofum þess eða afgreiðslustöðvum. Þá hefur skipulagi fyrirtækisins verið breytt, svið sameinuð og stjórnunarstöðum fækkað, með það að markmiði að einfalda reksturinn og samþætta starfsemi Skeljungs á Íslandi og í Færeyjum

Liður í áætlunum fyrirtækisins er að einfalda rekstur eldneytisstöðva. Dregið verður úr sölu- og markaðskostnaði með því að fækka vörumerkjum fyrirtækisins um eitt. Níu eldsneytisstöðvar sem hafa verið reknar undir vörumerki Skeljungs verða færðar undir vörumerki Orkunnar og bætast þar með í hóp 48 annarra Orkustöðva.

Auk þeirra rekur félagið 8 stöðvar undir vörumerkinu Orkan X. Áhersla félagsins verður því að bjóða upp á ódýrt eldsneyti á 65 vel staðsettum Orkustöðvum víðsvegar um landið. Skeljungur harmar að þurfa að kveðja gott og reynslumikið fólk, sem sumt hvert hefur starfað lengi hjá fyrirtækinu.

Skeljungur mun bjóða þeim starfsmönnum sem eiga hlut að máli aðstoð við leit að nýju starfi í samstarfi við ráðningarstofuna Hagvang. Vinnumálastofnun hefur verið tilkynnt um uppsagnirnar.