Samkomulag hefur verið gert um kaup Skinneyjar - Þinganess hf. á Höfn í Hornafirði á öllum hlutabréfum í Auðbjörgu hf., Þorlákshöfn. Samkomulagið er með fyrirvörum m.a. um samþykki Samkeppniseftirlitsins. "Eftir kaupin, ef af þeim verður, mun Skinney -Þinganes hf. verða með starfsemi á Höfn og í Þorlákshöfn. Með þessu hyggst Skinney – Þinganes hf. styrkja sig í sessi sem eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og treysta enn frekar fjölbreyttan rekstur í útgerð, fiskvinnslu og sölu sem byggst hefur upp á undanförnum árum," segir í tilkynningu.

Auðbjörg ehf. hefur frá stofnun árið 1970 verið með starfsemi í Þorlákshöfn. Skip fyrirtækisins ráða meðal annars yfir um 7% aflamarks í humri, um 10% í skrápflúru og 0,8% í löngu. Sameinað fyrirtæki mun ráða yfir tæpum fimmtungi aflamarks í humri, miðað við tölur sax.is .

Í tilkynningunni segir að þrátt fyrir kaup veiðiheimilda hafi Auðbjörgu ekki tekist að halda í við skerðingu á þeim veiðiheimildum er fyrirtækið ræður yfir. Það sé mat eigenda að rétt sé og tímabært að koma fyrirtækinu í hendur traustra aðila sem hafa það að markmiði að halda áfram starfsemi fyrirtækisins í Þorlákshöfn.