Skinney – Þinganes fékk verðlaun á Umhverfisdegi atvinnulífsins fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin og veitti Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar - Þinganess þeim viðtöku.

Þetta kemur fram í frétt frá SA – en þar segir jafnframt:

Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að fyrirtækið hafi haft jákvæð áhrif á umhverfi sitt og sýnt frumkvæði með nýjum verkefnum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda t.d. með rafvæðingu fiskimjölsverksmiðju Skinneyjar-Þinganess og með tilraun til að framleiða nýja orkugjafa á skip félagsins.

„Við þökkum af heilum hug fyrir þessa viðurkenningu sem okkur er veitt hér í dag,“ sagði Gunnar.

Skinney-Þinganes á og rekur eitt stærsta kúabú landsins, Flatey á Mýrum, en á ökrum Flateyjar er ræktuð repja sem er góð fyrir kýrnar, búið sjálft og útgerðina. Repjan nýtust á búinu en Skinney mun einnig nýta hana til að hefja framleiðslu á umhverfisvænni skipaolíu og er framleiðsla á henni að hefjast.

Hér má lesa nýlega umfjöllun Fiskifrétta um málið. Og meira hér.

Í frétt SA segir einnig:

„Það er mikill heiður sem okkur er sýndur með þessum verðlaunum sem við ætlum að nota sem hvatningu til frekari þróunar á umhverfismálum hjá félaginu. Repjan er mjög áhugavert verkefni, þar sem við höfum yfir að ráða miklu landrými í Flatey og að geta nýtt afurðir repjunnar ýmist sem orkugjafa fyrir skipin okkar og fóður fyrir kýrnar,“ segir Hjalti Vignisson, framkvæmdastjóri sölu Skinneyjar Þinganess.

Repjuverkefnið er unnið í samstarfi við Samgöngustofu og Mannvit en repjuolíu má nota sem íblöndunarefni á allar olíuvélar og krafturinn er sá sami og í jarðefnaolíu. Útblásturinn sem verður til við brennsluna er hins vegar hreinni og loftslagið græðir. Frumkvöðlar í landbúnaði á Suðurlandi lögðu til fyrstu íslensku olíuna sem var prófuð á skip vorið 2017.

Tekist hefur að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda sem rekja má til sjávarútvegs en eldsneytisnotkun hefur minnkað um 43% frá 1990 með fjárfestingu í nýjum skipum og tækni. Með því að nýta repjuolíu getur staðan orðið enn betri. Þeir sem eru allra bjartsýnastir telja að hægt væri að rækta næga repju á Íslandi til að framleiða olíu til að knýja allan fiskiskipaflotann.

Stjórnarformaður Skinneyjar Þinganess tók við verðlaununum ásamt Jóni Bernódussyni frá Samgöngustofu og Söndru Rán Ásgrímsdóttur frá Mannviti sem áttu frumkvæði að verkefninu en þau hvöttu Skinney-Þinganes til að hefja ræktun repjunnar og framleiðslu á eigin olíu.

„Það hefur verið sérstaklega gott samstarf á milli okkar, Samgöngustofu og Mannvits í þessu verkefni og eiga þau mikið hrós skilið fyrir sína aðkomu. Í raun og veru má segja að við höfum fengið að stökkva upp á vagninn þegar þau voru búin að koma honum á ferðina.“

Þá nefndi Gunnar að til skoðunar væri á Flatey að framleiða þar rafmagn úr metani sem berst frá kúamykjunni, það væri því aldrei að vita að fjósið í Flatey yrði knúið af rafmagni innan fárra ára sem kýrnar framleiði sjálfar!