Ráðherranefnd um efnahagsmál, þar sem að forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, utanríkisráðherra og innanríkisráðherra eiga sæti, hefur fjallað um viðvarandi styrkingu krónunnar og vaxandi hættu á ójafnvægi í hagkerfinu.

Nefndin hefur ákveðið að fela sérfræðingum úr forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti að greina stöðuna sem komin er upp og koma með tillögur um hvernig hægt sé að stemma stigu við þensluhættu og þeirri hættu sem steðjar að samkeppnishæfni þjóðarbúsins.

„Styrking krónunnar er til marks um bætta stöðu Íslands. Mikil spurn er eftir íslenskum vörum og þjónustu sem styrkir gengið og gerir Ísland að dýrari kosti. Þessi staða kallar á gamalkunnar hættur og krefst mikils aga í hagstjórn. Styrking krónunnar og veruleg hækkun launa setur útflutningsatvinnuvegi í vanda og rýrir samkeppnishæfni hagkerfisins. Hin jákvæðu skilyrði sem leika nú um efnahagslífið geta því fljótt snúist upp í andhverfu sína. Þetta er mikilvægt að greina vel þegar líður að næstu skrefum í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta,“ segir meðal annars í tilkynningu frá Forsætisráðuneyti og Fjármálaráðuneyti.

Sérfræðingarnir koma til með að fara yfir stöðuna á næstu vikum og koma til með að eiga fundi með hagsmunaaðilum til að varpa sem bestu ljósi á aðstæður til að fá hugmyndir að úrbótum.