Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem fær það verkefni að skoða erlenda löggjöf um aðskilnað eða takmörkun viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi. Einnig leggur hópurinn mat á kosti og galla slíkrar löggjafar fyrir fjármálamarkað hér á Íslandi og skoðar einnig hvort aðrar leiðir séu færar eða betur til þess fallnar að takmarka áhættu ar fjárfestingabankastarfsemi alhliða banka. Þetta kemur fram í frétt fjármálaráðuneytisins .
Hópnum ber að skila niðurstöðum í formi skýrslu til ráðherra í maí næstkomandi. Í kjölfarið leggur ráðherra skýrsluna fyrir Alþingi. Viðskiptablaðið hefur áður fjallað um skipun nefndarinnar. Í fréttinni segir Benedikt meðal annars að skýrslan verði fyrst og fremst innlegg í umræðuna, en alls ekki til þess að fá fyrir ákveðna niðurstöðu, því það er mikill áhugi á þessu, bæði í samfélaginu almennt og sér í lagi á Alþingi.
Starfshópinn skipa:
- Leifur Arnkell Skarphéðinsson, frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, formaður hópsins
- Björk Sigurgísladóttir frá Fjármálaeftirlitinu
- Fjóla Agnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Jónas Þórðarson frá Seðlabanka Íslands,
- Jón Þór Sturluson frá Fjármálaeftirlitinu
- Sigríður Logadóttir frá Seðlabanka Íslands