Þegar úrslit kosninganna í gær eru skoðuð eftir kjördæmum og hverjir voru kjörnir á þing sést að Sjálfstæðisflokkurinn á fyrsta mann inn í öllum kjördæmum.

Vinstri græn eiga síðan annan mann inn í þremur af sex kjördæmum, Steingrím J. Sigfússon í Norðausturkjördæmi, Svandísi Svavarsdóttur í Reykjavík Suður og loks Katrínu Jakobsdóttur formann í Reykjavík Norður.

Framsókn á annan mann inn í tveimur kjördæmum, Ásmund Einar Daðason í Norðvesturkjördæmi, og Sigurð Inga Jóhannsson formann flokksins í Suðurkjördæmi. Sjálfstæðismenn eiga svo bæði fyrsta og annan mann í Suðvesturkjördæmi, en það eru þau Bjarni Benediktsson formaður flokksins og Bryndís Haraldsdóttir.

Norðvesturkjördæmi

Í Norðvesturkjördæmi hlaut Sjálfstæðisflokkurinn tvo þingmenn, missti einn, Framsóknarflokkurinn hélt sínum tveimur, Samfylkingin og Vinstri græn héldu hvor um sig sínum eina þingmanni, en Píratar töpuðu sínum. Í stað þingmanna Pírata og annars manns Sjálfstæðisflokksins komu tveir þingmenn Miðflokksins.

Þessir voru kosningar inn á þing í Norðvesturkjördæmi:

  1. Haraldur Benediktsson - Sjálfstæðisflokkur
  2. Ásmundur Einar Daðason - Framsóknarflokkur
  3. Lilja Rafney Magnúsdóttir – Vinstri græn
  4. Bergþór Ólason - Miðflokkurinn
  5. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir - Sjálfstæðisflokkur
  6. Guðjón S. Brjánsson – Samfylkingin
  7. Halla Signý Kristjánsdóttir – Framsóknarflokkur
  8. Sigurður Páll Jónsson – Miðflokkurinn

Norðausturkjördæmi

Í Norðausturkjördæmi missti Sjálfstæðisflokkurinn einnig einn þingmann, fór úr þremur í tvo, Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir héldu sínum tveimur þingmönnum, Samfylkingin bætti við sig manni, fór úr einum í tvo þingmenn, en Píratar og Viðreisn misstu sína tvo. Þeirra í stað komu tveir þingmenn Miðflokksins.

Þessir voru kosnir inn á þing í Norðausturkjördæmi:

  1. Kristján Þór Júlíusson - Sjálfstæðisflokkur
  2. Steingrímur J Sigfússon – Vinstri græn
  3. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - Miðflokkurinn
  4. Þórunn Egilsdóttir - Framsóknarflokkurinn
  5. Logi Már Einarsson – Samfylkingin
  6. Njáll Trausti Friðbertsson - Sjálfstæðisflokkurinn
  7. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir – Vinstri græn
  8. Anna Kolbrún Árnadóttir – Miðflokkurinn
  9. Líneik Anna Sævarsdóttir - Framsóknarflokkurinn
  10. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir – Samfylkingin

Suðurkjördæmi

Í Suðurkjördæmi missti Sjálfstæðisflokkurinn einnig einn þingmann, fór úr fjórum í þrjá, Framsóknarflokkurinn hélt sínum tveimur, sem og Vinstri grænir, samfylking og Píratar sínum þingmanninum hver. Viðreisn missti einn þingmann en Miðflokkurinn og Flokkur fólksins fengu sinn hvorn þingmanninn.

Þeir sem hlutu kosningu í Suðurkjördæmi voru:

  1. Páll Magnússon - Sjálfstæðisflokkurinn
  2. Sigurður Ingi Jóhannsson - Framsóknarflokkurinn
  3. Birgir Þórarinsson - Miðflokkurinn
  4. Ásmundur Friðriksson- Sjálfstæðisflokkurinn
  5. Ari Trausti Guðmundsson - Vinstri græn
  6. Oddný G. Harðardóttir - Samfylkingin
  7. Silja Dögg Gunnarsdóttir - Framsóknarflokkurinn
  8. Karl Gauti Hjaltason – Flokkur fólksins
  9. Vilhjálmur Árnason – Sjálfstæðisflokkurinn
  10. Smári McCarthy – Píratar

Suðvesturkjördæmi

Í Suðvesturkjördæmi missti Sjálfstæðisflokkurinn einn þingmann, fór úr fimm niður í fjóra, Vinstri græn bættu við sig þingmanni úr einum upp í tvo, Viðreisn hélt sínum tveimur þingmönum, Píratar misstu einn, fóru úr tveimur í einn þingmann, Framsóknarflokkurinn hélt sínum eina þingmanni, en Björt framtíð missti sína tvo þingmenn.

Þeirra í stað fengu Miðflokkurinn og Flokkur fólksins sinn hvorn þingmanninn sem og Samfylkingin fékk einn þingmann en hafði ekki verið með neinn í kjördæminu.

Þeir þingmenn sem hlutu kosningu í Suðvesturkjördæmi voru:

  1. Bjarni Benediktsson - Sjálfstæðisflokkurinn
  2. Bryndís Haraldsdóttir - Sjálfstæðisflokkurinn
  3. Rósa Björk Brynjólfsdóttir – Vinstri græn
  4. Guðmundur Andri Thorsson - Samfylkingin
  5. Jón Gunnarsson - Sjálfstæðisflokkurinn
  6. Gunnar Bragi Sveinsson - Miðflokkurinn
  7. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - Viðreisn
  8. Jón Þór Ólafsson - Píratar
  9. Willum Þór Þórsson - Framsóknarflokkurinn
  10. Óli Björn Kárason - Sjálfstæðisflokkurinn
  11. Ólafur Þór Gunnarsson – Vinstri græn
  12. Guðmundur Ingi Kristinsson – Flokkur fólksins
  13. Jón Steindór Valdimarsson – Viðreisn

Reykjavík Suður

Í Reykjavíkurkjördæmi Suður missti Sjálfstæðisflokkurinn einn þingmann, fór úr þremur í tvo, Vinstri græn og Píratar héldu sínum tveimur hvor, en Viðreisn tapaði einum, fór úr tveimur þingmönnum í einn. Framsóknarflokkurinn hélt sínum eina þingmanni, en Björt framtíð tapaði sínum eina. Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Samfylkingin fengu hvert um sig einn nýjan þingmann í kjördæminu.

Þingmennirnir sem setjast á þing fyrir Reykjavíkurkjördæmi Suður eru þá:

  1. Sigríður Á. Andersen - Sjálfstæðisflokkurinn
  2. Svandís Svavarsdóttir – Vinstri græn
  3. Ágúst Ólafur Ágústsson - Samfylkingin
  4. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir - Píratar
  5. Brynjar Níelsson - Sjálfstæðisflokkurinn
  6. Kolbeinn Óttarsson Proppé – Vinstri græn
  7. Hanna Katrín Friðriksson - Viðreisn
  8. Inga Sæland – Flokkur fólksins
  9. Lilja Dögg Alfreðsdóttir - Framsóknarflokkurinn
  10. Þorsteinn Sæmunsson - Miðflokkurinn
  11. Björn Leví Gunnarsson – Píratar

Reykjavík Norður

Í Reykjavíkurkjördæmi norður héldu bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn sínum þremur þingmönnum hvor, en Píratar misstu tvo, fóru úr þremur niður í einn þingmann. Viðreisn hélt sínum eina þingmanni, en Björt framtíð missti sinn eina. Samfylkingin og Flokkur fólksins fengu svo sinn hvorn þingmanninn kjörinn.

Því lýtur þingmannalistinn fyrir Reykjavíkurkjördæmi Norður út sem hér segir:

  1. Guðlaugur Þór Þórðarson - Sjálfstæðisflokkurinn
  2. Katrín Jakobsdóttir – Vinstri græn
  3. Helgi Hrafn Gunnarsson - Píratar
  4. Helga Vala Helgadóttir - Samfylkingin
  5. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Sjálfstæðisflokkurinn
  6. Steinunn Þóra Árnadóttir – Vinstri græn
  7. Þorsteinn Víglundsson - Viðreisn
  8. Birgir Ármannsson - Sjálfstæðisflokkurinn
  9. Andrés Ingi Jónsson – Vinstri græn
  10. Ólafur Ísleifsson - Flokkur fólksins
  11. Halldóra Mogensen - Píratar