Vodafone hefur stofnað nýtt dótturfélag, Ljósleiðarafélagið ehf. Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, segir að tilgangur félagsins sé að halda utan um eignir í ljósleiðarainnviðum.

Hann segir Vodafone munu skoða þátttöku í útboðum vegna ljósleiðarauppbyggingar um landið. „Okkur finnst að það gæti verið spennandi að taka þátt í þessari uppbyggingu á næstu árum,“ segir hann.

Vodafone leigir nú aðgang að ljósleiðurum, þó félagið eigi tengdan búnað.