Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða lög um sjúkratryggingar. Starfshópnum er einkum ætla að skoða ákvæði um gerð samninga sjúkratryggingastofnunar um rekstur heilbrigðisþjónustu og eftirlit með þeim.

Starfshópurinn á einnig að horfa til ákvæði annarra laga sem kunna að varða samninga um heilbrigðisþjónustu, rekstur hennar og eftirlit með framkvæmd samninga. Starfshópurinn á að skila niðurstöðum, og eftir atvikum, tillögum til breytinga ásamt drögum að frumvarpi fyrir 1. febrúar 2016.

Formaður starfshópsins er Ragnhildur Helgadóttir, prófessor en aðrir nefndarmenn eru Ása Þórhildur Þórðardóttir, lögfræðingur, Birgir Jakobsson, landlæknir og Björn Zoëga, læknir og stjórnarformaður Sjúkratrygginga Íslands.