Marel hefur tilkynnt að félagið hyggi á almennt hlutafjárútboð og skráningu í Euronext kauphöllina í Amsterdam, til viðbótar við skráningu sína í Nasdaq kauphöllina á Íslandi. Í útboðinu verða boðnir til sölu allt að 100 milljónir nýrra hluta (sem samsvara um 15% af útgefnu hlutafé). Gert er ráð fyrir að skráning í Euronext kauphöllina í Amsterdam muni fara fram á öðrum ársfjórðungi 2019, háð markaðsaðstæðum. Marel greinir frá þessu í tilkynningu til kauphallar Nasdaq á Íslandi.

Veiti aðgengi að breiðari hóp fjárfesta

Í tilkynningunni segir að skráning hlutabréfa félagsins í Euronext kauphöllina í Amsterdam, til viðbótar við íslensku kauphöllina, muni auka sýnileika Marel og aðgengi að breiðari hópi alþjóðlegra fjárfesta. Útboð á nýju hlutafé muni einnig styrkja fjárhagsskipan félagsins og verði hlutirnir skráðir í gjaldmiðli sem styðji betur við stefnu félagsins um framtíðarvöxt og möguleg fyrirtækjakaup.

Marel var stofnað árið 1983 og er í dag leiðandi á sviði hátæknibúnaðar til vinnslu matvæla, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnað. Yfir 6.000 manns starfa hjá félaginu í yfir 30 löndum og 6 heimsálfum. Heildartekjur Marel á árinu 2018 námu 1,2 milljörðum evra.

Þá segir að í hópi viðskiptavina Marel séu bæði stór alþjóðleg fyrirtæki sem og fyrirtæki í fararbroddi á sínu landsvæði í um 140 löndum. Gott orðspor félagsins og traust langtíma viðskiptasambönd skili Marel breiðum tekjugrunni. Um 35% af heildartekjum félagsins komi frá þjónustu og sölu varahluta sem séu reglulegar tekjur og óháðar hagsveiflum og breytingum á eftirspurn á alþjóðamörkuðum.

Marel fjárfesti árlega um 6% af heildartekjum í nýsköpun og vöruþróun og hafi gert um árabil. Félagið hafi einnig þróað sinn eigin hugbúnað fyrir matvælavinnslu sem geri vinnsluaðilum kleift að hámarka nýtingu og afköst, fylgja gæðastöðlum og tryggja matvælaöryggi með rekjanleika í hverju skrefi. Hugbúnaðurinn hafi verið settur upp í um 2.000 verksmiðjum um allan heim. Vöru- og þjónustuframboð Marel geri viðskiptavinum félagsins kleift að auka nýtingu og afköst, tryggja gæði og fæðuöryggi og bæta öll stig framleiðslunnar með tilliti til sjálfbærni og velferð dýra.

Stjórnendur Marel búi yfir áralangri reynslu og hafa skilað góðum rekstrarárangri. Aukin hagkvæmni í rekstri og sterkt sjóðstreymi hafi ennfremur stutt við áframhaldandi fjárfestingu í markaðssókn félagsins sem skilað hafi hluthöfum góðri arðsemi.

Stefna að 12% meðalvexti á ári

Loks segir í tilkynningunni að Marel stefni að 12% meðalvexti á ári á tímabilinu 2017-2026, þar af um 4-6% með innri vexti og um 5-7% í gegnum fyrirtækjakaup. Á sama tímabili sé gert ráð fyrir að markaður með búnað til matvælavinnslu fyrir kjúkling, kjöt og fisk muni vaxa um 4-6% árlega.

Frá skráningu félagsins í Kauphöllina á Íslandi árið 1992 hafi heildartekjur þess vaxið að meðaltali um 22% á ári, bæði með innri og ytri vexti. Hluthafar félagsins séu um 2.500 talsins og sé Marel langstærsta félagið á markaði hérlendis, en stærð þess nemur um 36% af markaðsverðmæti allra skráðra félaga í Nasdaq kauphöllinni á Íslandi. Tvíhliða skráning hlutabréfa félagsins í Euronext kauphöllina í Amsterdam sé því eðlilegt næsta skref í frekari framþróun og vaxtarstefnu félagsins.

Stór dagur fyrir Marel

"Þetta er stór dagur fyrir Marel, þar sem við tilkynnum um fyrirætlanir okkar um hlutafjárútboð og skráningu í Euronext kauphöllina í Amsterdam. Við störfum á ákaflega spennandi vaxtarmarkaði, þar sem aukin fólksfjölgun, stækkun millistéttarinnar og stækkun borgarsamfélaga drífur áfram eftirspurn eftir hágæða matvælum sem eru framleidd á sjálfbæran og hagkvæman hátt. Marel er staðsett í miðju þessara drifkrafta og í samstarfi við  viðskiptavini höldum við áfram að kynna hátæknivörur, hugbúnað og þjónustu sem eykur afköst og nýtingu og minnkar sóun. Skráningin í Euronext í Amsterdam mun styðja við markmið okkar um 12% árlegan meðalvöxt tekna á tímabilinu 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samvinnu við lykilsamstarfsaðila ásamt kaupum á fyrirtækjum," er haft eftir Árna Oddi Þórðarsyni, forstjóra Marel í tilkynningunni.

„Þetta er mikilvægur áfangi í sögu Marel sem hefur vaxið frá rótum sínum í Háskóla Íslands í að vera í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Skráningin í Euronext kauphöllina í Amsterdam kemur til viðbótar við núverandi skráningu á Íslandi og veitir betra aðgengi að alþjóðlegum fjárfestum. Útboð á nýju hlutafé mun einnig styrkja fjárhagsskipan félagsins og veita reynslumiklu stjórnendateymi okkar styrkan grunn og alþjóðlegan gjaldmiðil til að framfylgja metnaðarfullri vaxtarstefnu okkar," segir stjórnarmaðurinn Ásthildur Margrét Otharsdóttir í tilkynningunni.