Háskólavellir er komið í tæplega þriggja milljarða króna vanskil við ríkissjóð vegna kaupa á eignum varnarliðsins í Keflavík. Upphæðina átti að greiða í fyrra. Háskólavellir keyptu 89 byggingar á svæðinu, þar af 76 fjölbýlishús með rúmum 1.500 íbúðum fyrir 11,3 milljarða króna fyrir um fjórum árum. Búið er að greiða 3,7 milljarða og eru 7,6 milljarðar eftir.

Fjallað var um málið í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins en þar sagði m.a. að í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis komi fram að Háskólavellir glími við rekstrarerfiðleika þar sem væntingar um fjármögnun hafi ekki gengið eftir. Þá segir í skýrslunni að bregðast þurfi við vanskilum Háskólavalla.

Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Háskólavalla, sagði í samtali við Ríkisútvarpið félagið í fjárhagslegri endurskipulagningu, sem staðið hafi yfir í nokkurn tíma og verið sé að semja við Þróunarfélag Keflavíkur, Kadeco, um uppgjör skulda. Kadeco sér um inntheimtu vegna sölu ríkisins á eignum á gamla varnarliðssvæðinu.