Sólveig Anna Jónsdóttir verður næsti formaður Eflingar-stéttarfélags og mun hún taka við af Sigurði Bessasyni, fráfarandi formanni, á aðalfundi félagsins þann 26. apríl nk.

Sólveig Anna er yfirlýstur bandamaður Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR sem talað hefur fyrir því að skipta út forystu Alþýðusambands Íslands, en um er að ræða tvö fjölmennustu verkalýðsfélög landsins..

B listi Sólveigar Önnu fékk 2099 atkvæði, eða 80,2% atkvæða en A listi stjórnar og trúnaðarráðs fékk 519 atkvæði, eða 19,8% atkvæða. Auðir seðlar voru 6 og ógildir voru 4.

Þeir sem voru með Sólveigu Önnu á lista og taka sæti í stjórn Eflingar eru:

  • Magdalena Kwiatkowska hjá Café Paris,
  • Aðalgeir Björnsson, tækjastjóri hjá Eimskip,
  • Anna Marta Marjankowska hjá Náttúru þrif,
  • Daníel Örn Arnarsson hjá Kerfi fyrirtækjaþjónustu,
  • Guðmundur Jónatan Baldursson, bílstjóri hjá Snæland Grímsson,
  • Jamie Mcquilkin hjá Resource International ehf.
  • Kolbrún Valvesdóttir, starfsmaður búsetuþjónustu Reykjavíkurborgar.

Á kjörskrá voru 16.578 félagsmenn og af þeim greiddu 2.618 atkvæði. Það gerir um 15,8% kosningaþátttöku, en það þýðir að nýr formaður var studd til valda af 12,7% félagsmanna.