Ef niðurstöður nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið koma upp úr kjörkössunum á laugardag munu átta flokkar komast í borgarstjórn, af sextán í framboði, en meirihlutinn samt sem áður halda velli.
Samkvæmt könnuninni er Framsóknarflokkurinn inni með mann með 3,6% atkvæða og Sósíalistar sömuleiðis með 3,9% atkvæða. Hins vegar er Flokkur fólksins ekki inni með 3,4%.
Meirihlutinn með minnihluta atkvæða
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í minnihluta, mælist með 26,3% og 7 menn en Samfylkingin mælist með 31,8% og 8 menn. Vinstri græn og Píratar fá sína tvo fulltrúa hvor, með 8,0% og 7,4% atkvæða, og því halda flokkarnir þrír meirihlutanum, 12 af 23 borgarfulltrúum, með 47,2% atkvæða.
Fjórði meirihlutaflokkurinn, Björt framtíð er ekki í framboði, en Viðreisn er það hins vegar, og mælist hún með 4,9% atkvæða og einn mann inn. Miðflokkurinn mælist svo með 6,5% og einn mann.
Þróa borgina áfram inn á við eða breyta borginni
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingar segir kostina í borgarstjórn verða skírari „og fleiri og fleiri að verða þeirrar skoðunar að þróa eigi borgina áfram inn á við.“
Hann nýtur stuðnings 43,5% í spurningu um hvern fólk vill sjá sem borgarstjóra, sem er minna hlutfall en flokkarnir sem standa að meirihlutanum eru með. Eyþór Arnalds borgarstjóraefni og oddviti Sjálfstæðismanna var nefndur af 29,4%, sem er meira en stuðningurinn við flokkinn sjálfan.
Hann segir stöðuna geta orðið flókna í borginni en hann sé sannfærður um að flokkurinn fái meira upp úr kjörkössunum. „Við erum eini stóri flokkurinn sem getur náð að knýja fram breytingar í borginni og ég er viss um að við munum fá fólk með okkur í þá vegferð.“
Vigdís stefnir á 4 borgarfulltrúa
Vigdís Hauksdóttir oddviti Miðflokksins er þriðja algengasta nafnið sem fólk nefnir sem borgarstjóra, en 8,5% aðspurðra nefndu hana, sem er 2 prósentustigum meira en flokkurinn hennar mælist með. Vigdís segir það segja mikið að svarhlutfallið sé innan við 50% í könnuninni „en þar liggja tækifæri Miðflokksins og við stefnum á að ná a.m.k. fjórum borgarfulltrúum.“
Könnuninni svöruðu 1.610 en hún var send á 3.650 manns og er því þátttakan 44%. Frá því er sagt að vegna mistaka hafi einu framboði verið sleppt í könnuninni, Borginni okkar - Reykjavík, framboði Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur borgarfulltrúa og fyrrum oddvita Framsóknar og flugvallarvina. Könnunin hafi því verið send öllum sem höfðu svarað á ný í gær ef vildu breyta.
Hér má sjá hvernig stuðningurinn skiptist í könnuninni:
- 31,8% og 8 fulltrúar - Samfylkingin, fékk 31,9% árið 2014.
- 26,3% og 7 fulltrúar - Sjálfstæðisflokkur, fékk 25,7% árið 2014.
- 8,0% og 2 fulltrúar - Píratar, fékk 5,9% árið 2014.
- 7,4% og 2 fulltrúar - Vinstri græn, fékk 8,3% árið 2014.
- 6,5% og 1 fulltrúi - Miðflokkurinn
- 4,9% og 1 fulltrúi - Viðreisn
- 3,9% og 1 fulltrúi - Sósíalistaflokkurinn
- 3,6% og 1 fulltrúi - Framsóknarflokkurinn, fékk 10,7% árið 2014
- 3,4% og engan fulltrúa - Flokkur fólksins,
- 0,9% og engan fulltrúa - Kvennaframboðið
- 0,9% og engan fulltrúa - Karlalistinn
- 0,8% og engan fulltrúa - Íslenska þjóðfylkingin
- 0,6% og engan fulltrúa - Höfuðborgarlistinn
- 0,6% og engan fulltrúa - Alþýðufylkingin
- 0,4% og engan fulltrúa - Borgin okkar - Reykjavík
- 0,0% og engan fulltrúa - Frelsisflokkurinn
Hér má lesa eldri fréttir um fylgi flokkanna í borginni:
- 17. maí 2018 - Líf: Vonbrigði ef þetta verður niðurstaðan
- 17. maí 2018 - Dóra Björt: Góð tíðindi fyrir Pírata
- 17. maí 2018 - Eyþór: Staðan galopin
- 17. maí 2018 - Dagur: Ánægður með niðurstöðuna
- 17. maí 2018 - Meirihlutanum ekki haggað
- 7. maí 2018 - Píratar fengju fjóra menn
- 27. apríl 2018 - Meirihlutinn með minnsta mögulega mun
- 11. apríl 2018 - 43% óánægð með Dag B. Eggertsson
- 10. apríl 2018 - Meirihlutinn í borginni fallinn
- 31. mars 2018 - Flestir vilja Dag áfram
- 29. mars 2018 - Samfylkingin á siglingu
- 15. mars 2018 - Ný könnun: Meirihlutinn heldur
- 22. febrúar 2018 - Ný könnun: Samgöngumál ráða för
- 10. febrúar 2018 - Björt framtíð úr 15,6% í 2,4%
- 7. febrúar 2018 - Sjálfstæðisflokkur bætir við sig
- 8. júní 2017 - Meirihlutinn rígheldur
- 7. júní 2017 - Könnun á fylgi flokkanna
Hér má lesa skoðanadálka, leiðara og pistla í Viðskiptablaðinu um málefni Reykjavíkurborgar:
- 7. maí 2018, Týr - Glötuð tækifæri
- 27. apríl 2018, Leiðari - Glansmynd Reykjavíkur
- 26. apríl 2018, pistill - Engar eyðsluklær í borgarstjórn
- 19. apríl 2018, pistlar - Stefnufesta og skýr framtíðarsýn í Reykjavík
- 20. janúar 2018, Huginn og Muninn - Slæm vika fyrir Dag