Hagfræðideild Landsbankans spáir óbreyttum stýrivöxtum á næsta fundi peningastefnunefndar.

„Við teljum að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda vöxtum óbreyttum á næsta fundi nefndarinnar, en ákvörðunin verður tilkynnt miðvikudaginn 12. desember. Við teljum þó alls ekki útilokað að nefndin hækki vexti um 0,25 prósentustig," segir í greiningunni

Vaxtahækkunin síðast var ekki óvænt

„Síðast hækkaði nefndin vexti um 0,25 prósentustig. Sú hækkun kom ekki á óvart, en við töldum allt eins líklegt að sú hækkun kæmi í desember. Lækkun bindiskyldunnar úr 40% í 20% var tekin á vettvangi Seðlabankans örfáum dögum fyrir síðustu vaxtaákvörðun. Við töldum líklegt þá að nefndin myndi vilja bíða og sjá áhrif lækkunar bindiskyldunnar áður en tekin væri ákvörðun um hækkun vaxta," segir í greiningunni.

„Með síðustu vaxtahækkun var nefndin í raun ekki að herða aðhaldið. Hún var einungis að bregðast við því að raunstýrivextir á mælikvarða verðbólgu og verðbólguvæntinga hefðu lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar og því þyrfti að færa þá vexti aftur upp ef viðhalda ætti óbreyttu aðhaldsstigi."