Í samvinnu við Rangárþing eystra hyggst Sláturfélag Suðurlands byggja 24 lítil raðhús til útleigu til starfsfólks SS á Hvolsvelli, vegna þenslu á húsnæðismarkaði í bænum líkt og annars staðar á landinu.

Einnig stefnir SS að stækkun kjötvinnslunnar og er búið að hanna 1.300 fermetra stækkun á 9.000 fermetra húsnæði hennar, sem auka á afköst og möguleika á nýjungum að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

„Jafnframt er stefnt að fullu útflutningsleyfi til Bandaríkjanna en mikil áhugi er á kaupum hinnar einu sönnu SS pylsu þar í landi," segir í tilkynningunni.

Árið 1991 flutti SS kjötiðnað sinn frá Reykjavík til Hvolsvallar og með honum um 130 ársverk. Umfang starfseminnar hefur aukist síðan þá og í dag eru um 160 ársverk á vegum SS í Rangárþingi eystra.

Vita ekki af öðru fyrirtæki sem leigi út húsnæði til starfsmanna

Í samvinnu við Rangárþing eystra er stefnt að byggingu 24 lítilla raðhúsa til útleigu til starfsfólks SS. Rangárþing eystra sér til þess að til séu á skipulagi lóðir en SS byggir og á húsnæðið.

Ekki er vitað til þess að önnur fyrirtæki hafi með sambærilegum hætti aðstoðað starfsfólk með því að leggja til vandað húsnæði til langtíma leigu.

SS fagnar 110 ára afmæli laugardaginn 28. janúar næstkomandi og gaman að geta sagt frá þessari fyrirhuguðu uppbyggingu verksmiðju og íbúðarhúsnæðis á þessum tímamótum.“