Þann 7. júlí sl. var hvalur dreginn á land í hvalstöðinni í Hvalfirði sem bar einkenni bæði langreyðar og steypireyðar. Starfsmaður Hafrannsóknastofnunar sem var við mælingar og sýnatöku í hvalstöðinni tilkynnti strax um atvikið og gerði viðeigandi athuganir og mælingar auk sýnatöku.

Nú hefur verið staðfest með erfðagreiningu að um blending steypireyðar og langreyðar var að ræða.

Fréttatilkynning Hafrannsóknastofnunar sem birt var rétt áðan er svo hljóðandi:

Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun

Þann 7. júlí sl. var hvalur dreginn á land í hvalstöðinni í Hvalfirði sem bar einkenni bæði langreyðar og steypireyðar. Starfsmaður Hafrannsóknastofnunar sem var við mælingar og sýnatöku í hvalstöðinni tilkynnti strax um atvikið og gerði viðeigandi athuganir og mælingar auk sýnatöku.

Bráðabirgðaniðurstaða Hafrannsóknastofnunar var að um væri að ræða blending en að staðfestingu yrði leitað með erfðafræðilegum aðferðum í vertíðarlok líkt og gert hefur verið í fyrri tilfellum þegar meintir blendingar hafa veiðst. Í kjölfar mikillar umræðu um það að umræddur hvalur væri hugsanlega steypireyður var ákveðið að flýta eins og kostur væri greiningu erfðasýna til að fá niðurstöðu eins fljótt og mögulegt væri. Þeirri vinnu er nú lokið.

Niðurstöður erfðafræðirannsóknanna staðfesta að umræddur hvalur sem veiddur var þann 7. júlí síðastliðinn var blendingur langreyðar og steypireyðar og að móðirin var steypireyður en faðirinn langreyður.

Nánar um rannsóknina

Erfðagreining fór fram á rannsóknastofu MATÍS en úrvinnsla gagnanna var unnin af erfðasérfræðingi Hafrannsóknastofnunar í samvinnu við sérfræðing MATÍS. Umrætt sýni var greint ásamt öðrum sýnum úr blendingum sem safnað hefur verið úr atvinnuveiðum frá árinu 1983, alls 5 einstaklingum. Þá voru greind erfðasýni úr 24 langreyðum sem safnað var í ár auk þeirra 154 sem veiddust árið 2015.

Jafnframt voru greind eldri sýni úr steypireyði (23 einstaklingar) sem til eru í lífsýnasafni Hafrannsóknastofnunar. Tvennskonar aðferðum var beitt við greiningu sýna. Annars vegar voru raðgreindir hvatberar (mtDNA) auk þess sem 15 erfðamörk voru greind með svokallaðri mikrósatelíta (nDNA) aðferð.

Erfðaefni hvatberanna erfist beint frá móður og staðfestir greiningin að móðir umrædds hvals var steypireyður. Þar sem hvatbera greiningin staðfestir ekki tegund föðursins var frekari greining gerð með umræddri mikrósatelíta aðferð.

Niðurstöðurnar erfðafræðirannsóknanna staðfesta sem fyrr segir að umræddur hvalur sem veiddur var þann 7. júlí síðastliðinn var blendingur langreyðar og steypireyðar.