Stjórn Arion banka og hluthafafundur hafa samþykkt að komi til þess á árinu 2018 að hlutabréf í bankanum verði boðin til sölu í almennu útboði og bankinn í kjölfarið skráður í kauphöll, muni starfsfólk fá hlutabréf í bankanum. Ástæðan er sögð að auka tryggð starfsfólksins.

Ákvörðun um skráningu bankans á markað hefur ekki verið tekin en undirbúningur að breyttu eignarhaldi stendur yfir og er almennt hlutafjárútboð í aðdraganda skráningar í kauphöll einn af þeim kostum sem í skoðun eru. Starfsfólk Arion banka er um 850 talsins í starfsstöðvum bankans um land allt.

Fá hlutabréf sem samsvara mánaðarlaunum

Verði Arion banki skráður í kauphöll á árinu 2018, mun hver starfsmaður fá hlutabréf í bankanum sem samsvara útborgun einna mánaðarlauna, þó að hámarki einni milljón króna fyrir frádrátt tekjuskatts og annarra gjalda.

Starfsfólki yrði ekki heimilt að selja hlutabréfin fyrr en tveimur árum eftir afhendingu og það starfsfólk sem ákveður að hætta hjá bankanum á því tímabili þyrfti að skila bréfunum án endurgjalds. Heildarkostnaður bankans er áætlaður á bilinu sex til sjö hundruð milljónir króna, komi til skráningar, og þar af er um helmingur tekjuskattur sem rennur til ríkisins og launatengd gjöld.

Um svokallaða kaupaukagreiðslu er að ræða sem kemur ekki til greiðslu nema að undangengnu hlutafjárútboði og skráningu bankans á markað á árinu 2018. Mun greiðslan dragast frá öðrum mögulegum kaupaukagreiðslum til starfsfólks vegna ársins 2018, þar sem slíkt er fyrir hendi.

Fjármálaeftirlitið hefur verið látið vita

Ítarlegar reglur Fjármálaeftirlitsins gilda um kaupauka starfsfólks fjármálafyrirtækja og er fyrirhugaður kaupauki í samræmi við þær og eftirlitið upplýst um hann. Fyrirhugaður kaupauki myndi aðeins ná til starfsfólks Arion banka en ekki dótturfélaga bankans.

Arion banki stendur traustum fótum og er fjárhagslega sterkur segir einnig í fréttatilkynningu bankans um málið. Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá hefur nýjasta ársfjórðungsuppgjör bankans ekki verið talið auka söluvænleika hans

Bankinn segist jafnframt vera í forystu um þróun fjármálaþjónustu og stafrænna lausna og leggur ríka áherslu á að halda henni. Markmiðið með því að starfsfólk bankans eignist hlutabréf í bankanum er fyrst og fremst að færa hagsmuni starfsfólks nær hagsmunum bankans og auka tryggð.