Félag starfsmanna stjórnarráðsins samþykkti nýgerðan kjarasamning BSRB við ríkið.

Félagið er það fyrsta sem lýkur kosningu um samninginn, en niðurstöður eiga að liggja fyrir eigi síðar en 20. júní.

85% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já, 8% nei og 7% skiluðu auðu. Þátttakan var 56% og var kosningin rafræn.