Skráning og áheitasöfnun gengur vel í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fer fram á morgun og stefnir bæði þátttaka og áheitasöfnun í met í ár.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer nú fram í 34. sinn og safnar stór hluti þátttakenda til góðra málefna á vefnum hlaupastyrkur.is . Þá er veðurspáin sérstaklega góð fyrir laugardaginn. Spáð er hægum vindi, bjartviðri og allt að 17 stiga hita á höfuðborgarsvæðinu.