Sjóðir í rekstri Stefnis hf. hafa selt 25 milljón hluti í Skeljungi og eiga nú 208 milljón hluti, eða 9,65% hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar .

Miðað við gangvirði bréfanna þegar þetta er skrifað, 7,53 krónur á hlut, eru hlutirnir 25 milljón 188 milljón króna virði, og þeir 208 milljón sem eftir standa 1,6 milljarðs króna virði.

Hlutabréf í Skeljungi hafa hækkað um 7,7% síðastliðinn mánuð, og um 6,5% frá því á fimmtudag.