Steinar Lúðvíksson hefur verið ráðinn ráðgjafi hjá Starfsþróunarsetri háskólamanna (STH).

Steinar er fæddur árið 1983 og er með BSc-próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og BSc-próf í Landfræði frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hann lokið námi í kennslufræði til kennsluréttinda á grunn- og framhaldsskólastigi.

Steinar mun annast ráðgjöf varðandi úthlutunarreglur vegna styrkja Starfsþróunarsetursins og veita umsækjendum aðstoð og þjónustu.

Hlutverk setursins er meðal annars að stuðla að framgangi félagsmanna Bandalags Háskólamanna (BHM) með markvissri starfsþróun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM.