Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið ráðinn til endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækisins KPMG að því er Fréttablaðið greinir frá . Steinþór hætti störfum sem bankastjóri Landsbankans í nóvember eftir að hafa sætt mikilli gagnrýni vegna sölu bankans á tæpum þriðjungshlut í Borgun.

Steinþór verður á meðal eigenda á ráðgjafasviði fyrirtækisins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, en starfsmönnum KPMG var tilkynnt um ráðninguna í morgun.

Áður en Steinþór tók við starfi bankastjóra Landsbankans hafði hann verið framkvæmdastjóri Actavis á Íslandi á sviði stefnumótunar. Þá var hann framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Möltu og í Bandaríkjunum. Á árunum 1990 til 2000 starfaði Steinþór hjá, meðal annars á sviði áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu.

Steinþór er með próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Edinborgarháskóla.