Sænski Handelsbanken AB hefur samþykkt að selja líftrygginga- og lífeyrissjóðsdeild sína SPP til Storebrand fyrir 18 milljarða sænskra króna.

Samkvæmt frétt Dow Jones þá mun Handelsbanken hagnast um fjóra milljarða sænskra króna af sölunni.

Sameinað félag mun verða stærsta líftrygginga- og lífeyrissjóðsfélag Norðurlanda með tekjur upp um 27 milljarða norskra króna.