Hugmyndir eru uppi um byggingu hótels fyrir ofan Akureyrarbæ.  Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í dag. Hjá bænum hefur deiliskipulag vegna þriðja áfanga Hálanda í landi Hlíðarenda verið til kynningar. Landið sem um ræðir er nærri skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, með útsýni yfir Akureyrarbæ.

Verktakafyrirtækið SS Byggir er eigandi lóðarinnar. Samkvæmt skipulagstillögu eru á svæðinu lóðir fyrir 52 sumarhús en einnig lóð fyrir allt að 250 herbergja hóteli. Í samtali við Morgunblaðið sagði Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri SS Byggir, að hugmyndirnar væru á frumstigi.