Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Í tilkynningu segir að nýjustu hagtölur séu í meginatriðum í takt við spá Seðlabankans, sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Efnahagsbatinn hafi haldið áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa hafi aukist.

Stýrivextir voru hækkaði um 0,25 prósentur á síðasta vaxtaákvörðunarfundi í byrjun nóvember. Þeir hafa síðan þá staðið í 4,75%.

„Verðbólga er enn fyrir ofan verðbólgumarkmið Seðlabankans en nýleg þróun bendir til þess að því verði náð á næstu misserum. Veruleg óvissa ríkir um þann feril nafnvaxta sem þarf til þess að ná verðbólgumarkmiðinu. Í ljósi efnahagshorfa og hugsanlega óhagstæðrar alþjóðlegrar efnahagsþróunar virðist núverandi vaxtastig um það bil við hæfi á komandi mánuðum. Horft lengra fram á veginn verður hins vegar nauðsynlegt að draga úr núverandi slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum fer eftir framvindu verðbólgunnar,“ segir í tilkynningunni.