Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25%. Stýrivextir hafa verið óbreyttir síðan í október 2017.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar kemur fram að vísbendingar séu um að langtímaverðbólguvæntingar hafi farið eitthvað yfir verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, sem er 2,5% verðbólga með 1,5% vikmörkum.

„Peningastefnunefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið. Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið mun það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafa þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga." segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Þá er bent á að verðbólga hafi verið 2,3% á öðrum fjórðungi ársins en hafði aukist í 2,7% í júlí. Verðbólga án húsnæðis hafi aukist en munurinn milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi minnkað mikið. „Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað og eldsneytisverð hefur hækkað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar hefur lækkað aðeins frá síðasta fundi peningastefnunefndar en gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi," segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Þá spái Seðlabankinn 3,6% hagvexti á þessu ári, sem sé aðeins hærri hagvöxtur en gert hafi verið ráð fyrir í maí. „Stafar það einkum af því að framlag utanríkisviðskipta er hagstæðara og vegur það þyngra en hægari vöxtur þjóðarútgjalda. Áfram eru horfur á að dragi úr hagvexti með hægari vexti útflutnings og innlendrar eftirspurnar. Þróun íbúðaverðs og vísbendingar af vinnumarkaði benda í sömu átt."