ÞAÐ STYTTIST Í AÐ HROGNAFRYSTING HEFJIST

„Við rétt sluppum inn áður en snælduvitlaust veður skall á. Við hefðum ekki mátt vera seinna á ferðinni því þá hefðum við ekki komist inn í höfnina.”

Þetta segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK, í viðtali við heimsíðu HB Granda en skipið kom til hafnar á Vopnafirði upp úr hádegi á miðvikudag með um 900 tonn af loðnu. Albert segir aflann hafa fengist í þremur köstum út af Skarðsfjöruvita í Meðallandsbugt.

Að sögn Alberts var þó nokkuð magn af loðnu í Meðallandsbugtinni.

„Það er víða loðna á svæðinu en hún var hins vegar ekki í þykkum torfum. Við köstuðum þrisvar og loðnan var alveg uppi í yfirborðinu og niður á um fimm faðma dýpi. Þarna var botndýpið um 40 til 50 faðmar,” segir Albert en samkvæmt sýnum sem tekin voru úr aflanum er hrognafylling loðnunnar 16-18%. Aflinn fer til frystingar á Vopnafirði.

„Það eru nokkrir dagar í að hrognafylling þessarar loðnu gefi tilefni til hrognaskurðar og frystingar á hrognum. Það er hins vegar loðna fyrir vestan sem er með mun meiri hrognafyllingu. En þar sem hún heldur sig, er búið að vera snarvitlaust veður marga undanfarna daga og það hefur því verið ómögulegt að stunda þar veiðar,” segir Albert.