Af þeim farþegum sem fóru í gegn um öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í júní biðu 89% í röð í fimm mínútur eða skemur og nánast allir farþegar, eða um 98% biðu í minna en 10 mínútur samkvæmt frétt Túrsista. Upplýsingarnar eru fengnar úr sérstöku kerfi sem fylgist með biðtíma farþega á flugvellinum.

Samkvæmt tilkynningu á vef Isavia hefur verið unnið hörðum höndum að því að halda biðröðum í öryggisleit í lágmarki og sýna þessar tölur að það hafi tekist vel í júnímánuði. Náðist þessi árangur þrátt fyrir að um 280 þúsund brottfararfarþegar hafi farið um flugvöllinn í mánuðinum. Er júní mánuður 2017 þriðji stærsti mánuðurinn á Keflavíkurflugvelli frá upphafi, á eftir júlí og ágúst 2016.

Í tilkynningunni segir Þröstur Söring framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Keflavíkurflugvallar: „Þessi frábæri árangur, í þriðja stærsta mánuði í sögu flugvallarins, hefur náðst með því að taka í notkun fullkomnari tækjabúnað, endurskipuleggja vinnubrögð og fjölga starfsfólki. Það er sérstaklega ánægjulegt hvað vel hefur gengið að ráða inn nýtt starfsfólk og hversu hratt það hefur náð að tileinka sér fagleg og góð vinnubrögð.“