Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurnesja (VS) sem haldinn var í Reykjanesbæ í gærkvöldi, fimmtudaginn 26. apríl, samþykkti með öllum greiddum atkvæðum, að gengið yrði til viðræðna við VR um sameiningu félaganna að því er segir í fréttatilkynningu.

Guðbrandur Einarsson, formaður VS og LÍV, sagði að aðdragandi þessarar ákvörðunar væri m.a. sú ólga sem skapast hefði í VS á síðustu vikum, en eins og sagt var frá í fréttum vísaði kjörstjórn félagsins frá framboðslista gegn A-lista stjórnar og trúnaðarráðs félagsins.

Tillögunni ætluð að skapa sátt

Segir Guðbrandur að tillagan nú væri fram komin til þess að skapa sátt svo að hægt verði að beina kröftum að því sem öllu máli skipti sem eru hagsmunir félagsmanna á svæðinu. Það sé því ánægjulegt að fundurinn hafi samþykkt þetta eins afgerandi og raunin varð.

Á fundinum kynnti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, starfsemi félagsins og Gils Einarsson fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurlands (VMS) sagði frá reynslunni af sameiningu VR og VMS.

Í máli Ragnars Þórs, sem sagðu er vera bandamaður þeirra sem buðu sig fram gegn Guðbrandi, kom fram að hann væri ánægður með þessa ákvörðun og að slík sameining myndi styrkja stöðu félagsmanna á svæðinu og VR í  heildina. Það hefðu fyrri sameiningar VR við önnur landsbyggðarfélög sýnt, þar sem þeim hafi fylgt efling félagsstarfs og aukin þjónusta á viðkomandi svæðum.

Náist samkomulag milli félaganna í viðræðum, sem ekki er talið að muni taka langan tíma, verður tillaga um sameiningu lögð fyrir félagsmenn VS í allsherjaratkvæðagreiðslu. Samningurinn yrði svo lagður fram til staðfestingar á næsta aðalfundi VS.