Vegna aukins fjölda ferðamanna hefur sumarstarfsmönnum á vegum Icelandair Group fjölgað síðustu árin en í ár hyggst félagið ráða til sín rúmlega 1.400 starfsmenn yfir sumarmánuðina.

Svali Björgvinsson, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs fyrirtækisins segir marga halda tryggð við fyrirtækið milli ára sem hann er mjög ánægður með að því er segir í Fréttablaðinu .

„Það er gleðilegt að á þessum uppgangstímum getum við veitt fólki góð launuð störf hjá okkur,“ segir Svali. „Vel á sjötta þúsund einstaklinga starfa hjá okkur nú í dag sem er frábært.“

Af þessum fjölda fara um 650 beint til starfa hjá Icelandair og um 350 til IGS sem þjónustar farþega á jörðu niðri. Síðan verða um 300 manns ráðnir inn til hótela Icelandair.

„Það sem er einnig áhugavert er að af öllum þessum starfsmönnum er kynjaskiptingin tiltölulega jöfn sem er markmið hjá okkur á öllum okkar sviðum.“