Sunna Elvira Þorkelsdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur hjá Inkasso löginnheimtu og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Áður starfaði Sunna við löginnheimtu hjá Gjaldheimtunni og frá árinu 2009 starfaði hún hjá Momentum greiðslu- og innheimtuþjónustu.

Sunna útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013 og lauk B.A. gráðu frá sama háskóla árið 2008. Þá lagði hún stund á Evrópurétt við Háskólann í Lundi árið 2012.