Veitingastaðurinn Súpubarinn, sem hingað til hefur að eins verið til húsa í Borgartúninu, mun á komandi misserum opna annan veitingastað við Bergstaðastræti 4 í miðbænum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu staðarins.
Þar segir að enn séu nokkrar framkvæmdir eftir svo unnt verði að hefja starfsemi í mið bænum en að vonast sé til að staðurinn muni verða opnaður í september. Súpumeistari Súpubarsins, Örlygur Ólafsson, mun í kjölfarið flytja sig í Bergstaðastrætið og stýra súpugerðinni þar.