Svandís Svavarsdóttir, þingsflokksformaður Vinstri grænna, hefur sent erindi til umboðsmanns Alþingis, þar sem farið er fram á að embættið fjalli um hvort Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafi gerst brotlegur við siðareglur ráðherra.

Byggir erindið á því að Bjarni hafi ekki birt skýrslu um eignir Íslendinga í aflandsfélögum strax og henni var skilað til ráðuneytisins, bygt á c-lið 6. greinar reglnanna, að því er fram kemur á mbl.is .

„Ráðherra leynir ekki upplýsingum sem varða almannahag nema lög bjóði eða almannahagsmunir krefjist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frumkvæði að birtingu slíkra upplýsinga sé hún í almannaþágu.“

Í erindinu segir Svandís að skýrslunni hafi verið haldið frá almenningssjónum í aðdraganda kosninga sem hafi snúist að verulegu leyti um skattamál og -undanskot.