Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir hefur verið ráðin sölu- og markaðsfulltrúi hjá 365 miðlum.

Svanhildur hefur um 25 ára reynslu af störfum á fjölmiðlum. Hún byrjaði að vinna á FM 95,7 árið 1990. Árið 1998 hóf hún störf á Stöð 2 og vann síðar einnig bæði í markaðsmálum á 365 miðlum og við dagskrárgerð í útvarpi.

Hún fór þaðan í ársbyrjun 2014 þegar hún var ráðin til Stórveldisins sem rak sjónvarpsstöðvarnar Miklagarð og Bravó.

Svanhildur hóf störf hjá 365 nú um mánaðamótin.