Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, hefur verið ráðin forstjóri Hörpu og tekur hún við starfinu þann 1. maí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hörpu.

Svanhildur Konráðsdóttir hefur yfir tuttugu ára reynslu af stjórnunarstörfum á vettvangi menningar, lista og ferðamála. Síðastliðin ár hefur hún starfað sem sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, en sviðið ber ábyrgð á allri aðkomu borgarinnar að menningu, listum og ferðamálum, þ.m.t. rekstri menningarstofnana borgarinnar auk Höfuðborgarstofu.  Svanhildur leiddi m.a. stofnun Höfuðborgarstofu og síðar Menningar- og ferðamálasviðs, átti frumkvæði að stofnun Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík (Meet in Reykjavík) og hefur jafnframt gegnt margvíslegum öðrum trúnaðarstörfum á vettvangi menningar og ferðamála, segir meðal annars í tilkynningunni.

Svanhildur hefur frá árinu 2004 komið að undirbúningi tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík, fyrst sem fulltrúi Reykjavíkurborgar í Austurhöfn ehf., og síðar í félögum sem sáu um byggingu og undirbúning rekstrar Hörpu.  Frá árinu 2012 hefur Svanhildur setið í stjórn Hörpu ohf.

Starfið var auglýst til umsóknar 7. janúar síðastliðinn í kjölfar þess að Halldór Guðmundsson, sem hafði gengt starfinu frá árinu 2012, sagði upp störfum og tók við verkefni erlendis. Svanhildur sagði sig frá öllu því sem sneri að ráðningu nýs forstjóra áður en starfið varð auglýst. Capacent var falin umsjón ráðningarferlisins og sá Auður Bjarnadóttir ráðgjafi um skipulagningu og framkvæmd þess. Alls bárust 38 umsóknir um starfið.

Hjartað slegið fyrir Hörpu

„Hjartað hefur lengi slegið fyrir Hörpu og ég er svo lánsöm að hafa tengst verkefninu nánast frá upphafi,“ segir Svanhildur.  „Harpa hefur markað vatnaskil í menningarlífi og ferðaþjónustu á Íslandi og árangurinn til þessa er um margt afar góður enda býr húsið að einstaklega góðu starfsfólki og er heimili lykilstofnana í íslensku tónlistarlífi. Húsið er þjóðarinnar – ótrúlega fjölsótt og fullt af lífi, glæsilegt auðkennismerki Reykjavíkur og segull sem vekur athygli víða um heim. Ég þekki nokkuð vel þau viðfangsefni sem snerta Hörpu og þar með einnig þær áskoranir sem við hefur verið að etja í rekstrinum. Þeim þarf að mæta af ábyrgð og festu á næstu misserum svo tryggja megi húsinu traustan og heilbrigðan rekstrargrundvöll til framtíðar. Að fá að leiða reksturinn og starfið í Hörpu er því mikil áskorun og draumaverkefni fyrir hvern þann stjórnanda sem vill vinna að samfélagslega mikilvægu og rekstrarlega krefjandi verkefni. Ég hlakka því mikið til að fá að helga mig Hörpu og er þakklát fyrir að vera treyst fyrir verkefninu.“