Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, sem eins og Viðskiptablaðið sagði frá fyrr í dag hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum, segir betra að vera trú skoðunum sínum heldur en eiga viðhlæjendur í Framsóknarflokknum. Hún segir skiptar skoðanir um málefni hælisleitenda innan Framsóknarflokksins.

„Flokksmenn eru hins vegar ragir við að tjá skoðanir sínar opinberlega,“ segir Sveinbjörg Birna og segir þá af einhverjum ástæðum sérstaklega viðkvæma, svo þeirra eigin sannfæring skipti ekki máli.

„Þeir velja því að enduróma skoðanir sem þeir telja líklegar til að forða þeim frá frekari spurningum. Vandi þeirra er hins vegar sá að almenningur heyrir ágætlega. Almenningur heyrir holan hljóm. Framsóknarmenn skortir sannfæringu þegar þeir eru inntir eftir afstöðu sinni til málefna hælisleitenda.“

Þetta kemur fram í pistli sem hún skrifaði fyrir stundu á facebook síðu sína undir yfirskriftinni Leiðir skilja. Þar segir hún meðal annars forystu flokksins ekki hafa metnað til að vinna flokknum fylgis á höfuðborgarsvæðinu heldur vilji halda honum sem sérhagsmunaflokki til sveita.

Ekki meira fylgi í 40 ár

Í pistlinum segir Sveinbjörg Birna að hún hafi ekki skorast undan ábyrgð þegar hún tók slaginn í síðustu borgarstjórnarkosningum og bendir á að flokkurinn hafi ekki fengið meira fylgi í borginni í 40 ár.

„Ég veigra mér ekki við að ræða „viðkvæm“ mál. Ég ræði um öll mál af hreinskilni, hvort heldur í tveggja manna tali, ræðustól í borgarstjórn eða viðtölum í fjölmiðlum. Það vita kjósendur,“ segir Sveinbjörg Birna meðal annars í pistlinum.

„Skiptir þá ekki máli hvort ég ræði um fjármál borgarinnar, húsnæðismál, samgöngumál, skólamál, velferðarmál eða málefni hælisleitenda. Ég stend með skoðunum mínum í stað þess að enduróma skoðanir annarra.“

Aldrei annað en smáflokkur

Vísar hún einnig í að hún hafi tekið þátt í því þegar flokkurinn hafi unnið sinn stærsta sigur í aþingiskosningunum árið 2013 þegar hún var kjörinn varaþingmaður. Þá var flokkurinn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrum forsætisráðherra.

„Að undanförnu hefur mér það orðið ljóst að forystu flokksins skortir metnað til að vinna honum fylgis á höfuðborgarsvæðinu heldur virðist stefnt að því að halda honum sem sérhagsmunaflokki til sveita,“ segir Sveinbjörg Birna sem loks snýst til varnar fyrir þau ummæli sem hún hefur verið gagnrýnd fyrir.

„Stóryrtar yfirlýsingar frá forystu flokksins um ummæli mín eru hjóm eitt. Flokkur sem er ekki tilbúinn að ræða mikilvæg málefni verður aldrei annað en smáflokkur.“